Halda áfram.

Já, ég er búinn að lofa að vera duglegur að blogga. Hvað er málið með með að maður sem er fæddur 1979 s.s. 28 ára gamall, hefur aldrei tekið bílpróf, verið tekinn 7 sinnum fyrir að aka réttindalaus og fær bara skilorðsbundið fangelsi? Hvað þarf þessi maður að vera tekinn oft svo honum verði stungið í steininn? Og svo hversu þungann dóm fær hann fyrir næsta brot. Mánuð? Ég veit að hann fær auðvitað mikla sekt, eða ekki. Það gæti vel verið að hann þekki einhvern innan kerfisins sem að sleppir honum 7 sinnum með skilorðsbundnum dóm,jafnvel oftar, því þannig er nú Íslenska dómskerfið. Maður sem misnotar barn eða drepur mann, hann fær vægari dóm en sá sem er dæmdur fyrir fjárdrátt eða skattsvik. Það virðist vera orðin staðreynd að peningar eru mikilvægari heldur en manneskjur. Ef að það sé dæmt í misnotkunarmáli gagnvart barni, þykir það virkilega nóg að láta viðkomandi aðila borga fórnarlambinu einhverja hundraðþúsundkalla og þá sé allt í fína lagi með barnið? Nei, veistu það er bara alls ekki þannig, þetta ristir mun dýpra. Einstaklingur sem lendir fyrir þessu þarf að burðast með þetta alla ævi ef ekkert verður að gert. Frekar finnst mér að ætti að skylda sökudólginn til að borga fyrir fórnarlambið eins marga sálfræðitíma og það þarf. Og svo er það annað,hver er tryggingin fyrir því að þegar sökudólgurinn losnar út að hann endurtaki ekki leikinn? Getur einhver sagt mér það?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guffi Árna

nú skal ég segja þér sögu.

Einu sinni fyrir langa löngu var úlfur sem hét úlfur og hann langaði svo að borða börn og hitti hann þá hana hettu,,enn hennar rétta nafn var rauðhetta af því hún notaði rauða hettu sem hettu og hét hún því rauðhetta. Enn þegar úlfurinn ætlaði að borða hana þá söng hún piparkökusönginn og kallaði á kasper,jesper og jónatann sem hjálpuðu henni svo mikið að bastían bæjarfógeti brast í grát og kallaði á kalla kanínu sem kom og hjálpaði,,,,,,,,,,,,,,,,Verð að fara að tala við einhverja aðra enn þessa helvítis bauna hæ hæ.

Guffi Árna, 25.11.2007 kl. 14:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband